17.10.2008 | 14:19
Hverjum er um að kenna um krísuna?
Ég fylgist með málum úr fjarlægð og það er ekki laust við að maður verði fyrir aðkasti vegna fjármála Íslands hér down under. 'you´re gone bust´ er setning sem maður heyri soldið oft. Ég lít ekki þannig á það enda eru Íslendingar harðari en andskotinn og það er ekkert sem getur dregið þá í svaðið. Við erum búin að lifa af harðindi mun meira en þetta í þúsund ár.
Hinsvegar eru aðstæður þannig að maður veltir því sér fyrir sér af hverju þetta ástand er svona. Jú það er mjög einfalt. Ríkisstjórn Íslands og alþingismenn hafa ekkert verið að spá í fjárfestingar Íslenskra fyrirtækja og leyft þeim í ljósi ´frjálshyggju´að blómstra. Sem er að sjálfsögðu í lagi svo framarlega sem skuldir eru ekki meiri en ákveðin prósenta af þjóðarframlegð. En einhverra hluta vegna þá yfirsást það. Nú sitjum við uppi með 2-3 ára þjóðarafkomu í skuldum, ég spyr, af hverju? Í raun er málið mjög einfalt, við erum ekkert að fylgjast með. Við setjum pólitíkusa í ráðandi stöður á fyrirtækjum sem hafa með þessi mál að fara og þeir fara eftir því sem þeim er sagt í flokkapólitík. Hættum að kjósa flokka, kjósum fólk á þing. Fólk sem lætur Ísland skipta sig máli og þykir vænt um Íslendinga.
Í USA þá má fyrirtæki aldrei fara yfir ákveðna stærð miðað við tekjur þjóðarframleiðslu. T.a.m þá eru vandræði á Wall street núna aðeins 5% af þjóðartekjum USA. Á Íslandi eru þjóðartekjur 5% af skuldunum. Þetta er náttúrulega ekkert í lagi. Svo veltum við okkur uppúr því hvernig sumarbústaði auðmenn Íslands voru að byggja. Hvað kemur það okkur við, hver einasti Íslendingur myndi gera það sama ef hann hefði aðgang að sama auð. Að vísu eru þetta ferlega smekklausir sumarbústaðir, en það er annað mál.
Vandamál Íslands er vegna þess að stjórnendur landsins voru ekki að gera vinnuna sína, þetta er ferlega einfalt. Það eru ekki margir sem stand uppúr, en þeir eru til og hafa hugsjón. Við þurfum fólk með hugsjón ekki flokkatengsl.
T.a.m hef ég alltaf talið að Baugsfeðgar hafi gert Íslendingum mjög góða hluti. Þeir lækkuðu vöruverð til muna á sínum tíma. Við megum ekki gleyma því. Í fáránlegu viðtali í Silfuregils núna um daginn þá gerði þáttarstjórnandi sig að algeru fífli, því miður þá missti ég allt álit á nafna mínum. Jón Ásgeir kom mjög vel út, ég leyni því ekkert að ég hef mikla trú á honum og ég held að hann komi heill fram. Maður fær það á tilfinninguna að Íslendingum hlakki til að auðmenn Íslands fari á hausinn, því miður þá skil ég það ekki, því að landinn fylgir með.
Við Íslendingar verðum alltaf öfundsjúk ef einvherjum gengur vel og reynum að finna allt það versta sem til er í fari einvhers sem gengur vel. Hættum þessu volæði, sýnum hvað í okkur býr og styðjum hvort annað.
Við erum gersamlega langflottasta þjóð í heimi, engin spurning.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2008 | 14:12
LANDSLIÐIÐ Í HANDBOLTA - TIL HAMINGJU
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2008 | 13:08
Og RÚV bregst manni (Ég sem hef alltaf borgað afnotagjöldin)
Maður er staddur down under og getur ekki séð leikinn, ÍSLAND-SPÁNN. Vinsamlegast reka alla tæknideild RÚV ásamt öllum yfirmönnum. Þetta er til skammar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2008 | 11:16
Hvílík heimska!!! VÁ
|
Hávaðinn óþolandi að sögn íbúa |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.4.2008 | 03:54
Brúðkaup
Mér og Rúnu var boðið í brúðkaup um síðustu helgi hérna í Brisbane og var ég beðinn um að vera mc eða master of ceremony. þykir mér það mikill heiður og þá sérstaklega sökum þess að brúðhjónin eru bæði af ítölsku bergi brotin og kaþólsk. Báðar ættir reyndar frá Sikiley, þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur stressið hjá mér. Ég sá alla Godfather seríuna fyrir mér og sagði það yfir salinn að mér stæði ekkert á sama, of margar bíómyndir um Sikileyinga væri góð sönnun þess að ég myndi alls ekki gera neitt grín að Ítölskum fótboltaköppum né pastaréttum (sem er ferlega súrt þar sem þau málefni eru endalaus). Nú annar hver karlmaður í veislunni hét Salvatore eða Guiseppe. Þetta var frábær dagur og mikil lífsreynsla fyrir mig. Maður er búinn að fara í þrenn brúðkaup síðan maður flutt hérna niðureftir, ég sem komst aldrei í brúðkaup heima á Íslandi.
Ég stórefa að ná að mæta í mitt eigið, ekki svo að það sé að fara að gerast, allavegana ekki að mér vitandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2008 | 08:24
Taugadeildin
Þetta voru skemmtilegir tímar
Langflottasta bandið í den. 
http://axelkrist.com/taugadeildin/index.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.2.2008 | 10:12
Ég þarf að bæta mig í golfinu!
|
Ekkert fær stöðvað Tiger Woods |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2008 | 11:23
Ekki garðslanga, heldur kyrkislanga
gata) og er mjög algeng á þessu svæði og við búum rétt við skóglendi sem segir sig sjálft að við megum eiga von á þessu með reglulegu millibili. Við báðum hana mjög kurteisislega að koma sér til síns heima og sýnist mér á öllu að hún sé búin að yfirgefa svæðið. Enginn dónaskapur, einstök yfirveguð kurteisi og engin geðshræring.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.1.2008 | 17:15
Jól á Íslandi
Vá, þvílík viðbrigði að halda jólin á Íslandi eftir 5 ára hlé. Þrjár lægðir tóku á móti okkur á nokkrum dögum eftir komuna til landsins en maður svaf fyrstu dagana. Ég var alveg búinn að gleyma þessu skammdegi en verð að segja það er smá fílíngur að hafa það.
Jólasnjórinn kom á aðfangadag og hélst í nokkra daga svona til að sýna okkur útlendingunum hvernig jólin eru skv staðli, alveg ekta coca cola jól. Það var rokið út að búa til snjókarl og fara í snjókast enda fjölskyldan ekki komist í snjó í 6 ár.
En það er fjárhagslegt hrun að heimsækja þetta land, mér sýnist 5.000 kallinn stefna hraðbyri í það að verða klink. Enda tala allir í milljörðum. Allir segja að þetta lagist þegar við göngum í EU, tökum upp evruna og fáum aðgengi að erlendum bönkum. Ósjálfrátt spyr maður; af hverju er ekki búið að því? Eftir hverju er beðið? Jamm...............................
En við yfirgáfum skerið í gær vel mett með jólapinklana í kílóavís.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2007 | 07:30
LA sökkar feitt
Þvílík leiðindaborg! Ég bara skil ekki hvernig fólk getur búið hérna. Hollywood og Beverly Hills ekkert merkilegt. Stokkseyrarbakki hefur meira uppá að bjóða enn þessi leiðindasollur. Vá, ég hef aldrei orðið fyrir eins miklum vonbrigðum með nokkra borg í heiminum eins og LA og hef ég komið í þær nokkrar en að vísu hér í LA áður en á öðrum forsendum en túristi. Tókum túrista túrinn um Hollywood/Beverley Hills og það var það eina sem höfðaði svona aðeins til manns, en þetta er allt svoddans gerfiborg. LA Downtown er upplifelsi fyrir sig og því sunnar sem dregur því ver fer ástandið og þegar fólk er farið að ávarpa mann 'Hey Gringo, habla espaniol? þá fer maður að hugsa sér til hreyfings.
Málið er að borgin hefur bara ekkert uppá að bjóða.
Sem betur fer er maður á leið til New York á morgun, nær Stokkseyrarbakka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



skvisumamma
maddit
songfuglinn




