Aussie frasar

Hér er smá fróðleikur um slánguryrðin hjá Áströlum. Ég hef lauslega þýtt þetta yfir á hið ástkæra ylhýra.

G’ day mate
Gleður mig innilega að hitta yður!

He’s Blotto
Svo mikill mjöður,svo lítill styrkur til að standa upp.

You little ripper!
Get ekki orðum bundist yfir eiginleikum þínum.

Rack off
Ekki er óskað eftir nærveru yður.

Fair dinkum
Að sjálfsögðu er þetta dagsatt.

Pull yah head in
Þetta er alveg rétt hjá þér, en vinsamlegast haltu þér saman.

Wanna Rage?
Alkóhól uns áfengisdauði.

You Drongo
Frekar heimsk manneskja.

Your  shout
Ef þú vilt halda heilsunni þá kaupir þú næsta drykk.

Go on
Ég er ekki alveg viss um hvað þú ert að segja.

Whadayawant?
Hvað vantar yður?

Have a Chunder
Sögnin að æla.

You pong
Við erum sammála um það að viðrekstur þinn er viðbjóður.

Bloody oath!
Ég er algerlega sammála yður.

Howya going?
Hvernig líður yður?

Give it a go ya mug!
Er þetta eitthvað sem þú getur ekki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessaður frændi.

Sýnist að þú hafir náð að fara yfir flesta hluti, þó er eitt sem ég rak augun í sem vantar. Aussi piss! sem er kannski betur þekkt sem Foster´s bjór.

Bið að heilsa öllum í neðra og bara svo það sé á hreinu þá misstuð þið af massa veislu um daginn.

Góðar stundir,

Dólgurinn kveður!

Halli (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband